Gervigreindarskírteini

Gervigreindarskírteini

15. maí, 2026

Fáðu þitt eigið Pokémon-ökuskírteini

Í komandi sveitarstjórnarkosningum verður heimilt að nota stafræn ökuskírteini sem gild persónuskilríki, líkt og fram kemur í leiðbeiningum Landskjörstjórnar . Okkur hjá Ambögu hafa borist ábendingar um að í einhverjum tilfellum séu þessi skírteini einungis skoðuð með berum augum, en ekki skönnuð eða sannreynd rafrænt.

Á tímum þar sem spunagreind getur framleitt og forritað sannfærandi falsanir á augabragði verður þetta að teljast töluverð áhætta.

Í fyrri færslu okkar um stafræn ökuskírteini fórum við ítarlega yfir hvers vegna stafræn ökuskírteini sem eru ekki skönnuð eru með öllu óáreiðanleg. Með tilkomu nýjustu kynslóða gervigreindar er ekki lengur aðeins hægt að falsa slík skírteini, það er orðið einfalt, fljótlegt og nánast ókeypis.

Til að sýna hversu hversu langt tæknin er komin, og undirstrika nauðsyn þess að skírteinin séu alltaf skönnuð, settum við upp kerfi sem gefur sjálfkrafa út stafræn ökuskírteini fyrir 500 Pokémon-verur. Kerfið er svokölluð Progressive Web App (PWA) vefsíða sem gerir það að verkum að hægt er að setja hana upp eins og hvert annað app á hvaða snjallsíma sem er. Appið hegðar sér og lítur út eins og raunverulega Ísland.is smáforritið.

Hér er búið að setja upp PWA vefsíðuna sem app og hún ræst. Raunverulega island.is appið er hægra megin til samanburðar.

Hér er búið að setja upp PWA vefsíðuna sem app og hún ræst. Raunverulega island.is appið er hægra megin til samanburðar.

Gervigreind hefur útrýmt þröskuldum

Einhverjir gætu haldið að það krefjist mikillar sérþekkingar eða teymis þrautþjálfaðra forritara að smíða svo nákvæmt afrit af island.is appinu. Sú er ekki raunin lengur.

Kerfið sem við settum upp var að öllu leyti smíðað og forritað af spunagreind á innan við klukkustund. Við notuðumst einfaldlega við áskrift af ChatGPT 5.5 sem kostar um $20 á mánuði. Vefsíðan sem hýsir skírteinin keyrir svo á vefþjóni sem kostar $5 á mánuði. Engin djúpstæð forritunarkunnátta var nauðsynleg.

Þetta þýðir að tilkostnaður og tæknilegir þröskuldar við að verða sér úti um fölsuð skilríki er horfinn. Með hjálp gervigreindar gæti hver sem er tekið sér aðeins meiri tíma til að smíða app sem sýnir nákvæmlega þau gögn, aldur og nafn sem viðkomandi kýs. Ef skírteinin eru ekki skönnuð eða sannreynd rafrænt er engin áreiðanleg leið til að greina slíka eftirlíkingu frá raunverulegu skírteini með berum augum einum saman.

Þessi öra þróun gervigreindar gerir það að verkum að niðurstöður okkar úr fyrri færslu eiga enn betur við en áður. Ef treysta á á stafræn skilríki verður hönnun þeirra, og ferlið við að sannreyna þau, að taka mið af þeirri staðreynd að sjónrænar falsanir og hönnun nákvæmra eftirlíkinga eru nú á allra færi.

Niðurstaðan er einföld. Stafræn skilríki á að sannreyna rafrænt. Það er ekki nóg að horfa á skjá.