[Ö-206] Verkfærakista hakkarans

Hagnýt notkun á verkfærum og vefseljum

Námskeiðið er tæknilegt framhald af Hugarfari hakkarans. Á meðan grunnnámskeiðið leggur áherslu á hugarfar og veikleika án sérstakra tóla, þá kafar þetta námskeið djúpt í notkun vefselja (e. intercepting proxies). Lögð er áhersla á að þátttakendur læri að nota Burp Suite til að skoða, grípa og breyta umferð á milli vafra og bakenda.

Efnistök

Farið er yfir hvernig forritarar geta notað sömu verkfæri og öryggissérfræðingar til að prófa sín eigin kerfi. Námskeiðið er byggt upp á hagnýtum æfingum þar sem þátttakendur vinna með Burp.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er ætlað forriturum sem hafa lokið [Ö-108] Hugarfari hakkarans og vilja bæta tæknilegum verkfærum í sín vinnubrögð. Þetta er kjörið námskeið fyrir þá sem vilja geta framkvæmt ítarlegri öryggisprófanir á sínum eigin vefþjónustum.

Hagnýtar upplýsingar

Fyrirtæki, stofnanir og stærri hópar

Námskeiðið er samtals sex klukkustundir, skipt í þrjár tveggja klukkustunda lotur. Alla jafna eru námskeið haldin í persónu hjá verkkaupa, sem útvegar sal eða fundaherbergi þar sem leiðbeinandi Ambögu getur haldið fyrirlestur. Sé þess óskað getur Ambaga útvegað kennslurými. Hægt er að komast til móts við starfsfólk sem er í fjarvinnu með notkun fjarfundabúnaðar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með tölvur sem leyfa uppsetningu á Burp Suite.

Verð námskeiðsins veltur á fjölda þátttakenda. Hafðu samband að óska eftir tilboði.

Einstaklingar

Auk þess að bjóða upp á námskeið fyrir fyrirtæki, heldur Ambaga reglulega námskeið fyrir einstaklinga. Námskeiðið fer fram á höfuðborgarsvæðinu og sér Ambaga um að útvega kennslurými. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um tímasetningu.

Verð fyrir slíkt námskeið er 180.000 kr (með vsk) á mann.