[Ö-212] Reynslusögur

Upprifjun og greining á raunverulegum innbrotum

Námskeiðið er sjálfstætt framhald af Hugarfari hakkarans. Markmiðið er að dýpka skilning forritara á öryggisveikleikum með því að skoða hvernig þeir birtast í raunverulegum árásum. Í stað þess að einblína á tæknilegar æfingar er sjónum beint að þekktum öryggisbrestum síðustu ára.

Efnistök

Farið er yfir valdar dæmisögur af innbrotum hjá fjölbreyttum fyrirtækjum og atburðarásin er tengd við þá flokka veikleika sem farið var yfir í grunnnámskeiðinu.

Meðal þess sem tekið er fyrir:

  • Atburðarás innbrota rakin skref fyrir skref.
  • Tæknileg greining á þeim veikleikum sem voru misnotaðir.
  • Hvernig hefði mátt koma í veg fyrir árásina með réttum forritunaraðferðum.

Námsefnið er lifandi og tekur mið af því sem er efst á baugi í netöryggismálum hverju sinni.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er hugsað sem upprifjun fyrir teymi sem hafa þegar lokið [Ö-108] Hugarfari hakkarans.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið er ein tveggja klukkustunda lota. Alla jafna eru námskeið haldin í persónu hjá verkkaupa, sem útvegar sal eða fundaherbergi þar sem leiðbeinandi Ambögu getur haldið fyrirlestur. Sé þess óskað getur Ambaga útvegað kennslurými. Hægt er að komast til móts við starfsfólk sem er í fjarvinnu með notkun fjarfundabúnaðar.

Verð námskeiðsins veltur á fjölda þátttakenda. Hafðu samband að óska eftir tilboði.